Seljandi
Seljandi vörumerkjanna Juliana og Halls á Íslandi er Listhús Arc ehf., kt. 571024-0200, eigandi lénsins www.uxhome.is.
Seljandi áskilur sér rétt til að:
-
hafna eða fella niður pöntun ef greiðsla berst ekki innan þriggja daga frá pöntun,
-
hafna pöntun ef verð eða upplýsingar á vefnum reynast rangar,
-
breyta verði eða hætta sölu vara án fyrirvara.
Pöntun er staðfest með tölvupósti til þess netfangs sem kaupandi skráir við pöntun.
Verð
Öll verð eru í íslenskum krónum og innifela virðisaukaskatt.
Verð geta breyst án fyrirvara, m.a. vegna gengisbreytinga, breytinga á hráefniskostnaði og innsláttarvillna.
Greiðslur
Bein greiðsla:
Millifærsla, debet- og kreditkort.
Greiðsludreifing:
-
50% við pöntun
-
50% þegar varan er tilbúin til afhendingar í vöruhúsi Eimskips, Sundahöfn Reykjavík.
Kortagreiðslur:
Greiðslulinkur er sendur og sér kaupandi um að semja við sitt greiðslufyrirtæki um skiptingu greiðslna ef þess er óskað.
Afhending og flutningur
Heimsending er í boði um allt land.
-
Almennur afhendingartími er 1–3 virkir dagar eftir að vara hefur verið afgreidd úr tolli.
-
SMS er sent þegar vara fer í útkeyrslu.
-
Heimakstur er ekki innifalinn í verði og er greiddur áður en sending hefst.
Ábyrgð flutnings:
-
Þegar vara hefur verið afhent í Sundahöfn flyst ábyrgð flutnings yfir á kaupanda.
-
Ef kaupandi biður um áframflutning frá Flytjanda frá Sundahöfn gildir trygging seljanda þar til varan er afhent.
Við móttöku vara:
Kaupandi skal skoða umbúðir strax.
Ef ummerki um skemmdir sjást skal:
-
taka ljósmyndir,
-
gera athugasemd við bílstjóra,
-
senda ljósmyndir og upplýsingar á hello@uxhome.is eða baldvin@listhus.is og hringja í 888 0606.
Ef vara er ekki sótt innan tilskilins tíma leggst á hana geymslugjald skv. verðskrá Eimskips. Kaupandi greiðir geymslugjöld áður en afhending fer fram.
Skila- og skiptiréttur
Þegar pöntuð vara hefur verið send frá framleiðanda eða komin til landsins er ekki mögulegt að hætta við, skila eða fá endurgreitt.
Ekki er hægt að skila vöru sem hefur verið sett saman eða opnuð úr umbúðum.
Umboðssala (valkostur):
Listhús Arc getur tekið vöru í umboðssölu gegn 15% sölulaunum, að því gefnu að varan sé óskemmd og söluhæf. Listhús Arc áskilur sér rétt til að hafna vörum í umboð ef þær teljast óseljanlegar.
Kaupandi er sá sem skráður er á reikningi og ber ávallt fjárhagslega ábyrgð á pöntun.
Gölluð vara
Ef galli eða vöntun kemur í ljós skal hafa samband innan 7 daga frá móttöku.
Senda skal:
-
reikningsnúmer eða kennitölu kaupanda,
-
mynd af gallanum,
-
mynd af vörunni í heild,
-
mynd af framleiðslunúmeri (ef til staðar).
Tilkynningar berast á hello@uxhome.is eða 888 0606.
Ábyrgðir – Juliana (Danmörk)
Juliana veitir 12 ára framleiðsluábyrgð á eigin vörum.
Ábyrgðin kemur frá framleiðanda, ekki seljanda á Íslandi. Listhús Arc sér hins vegar um aðstoð við málsmeðferð gagnvart framleiðanda.
Skilyrði fyrir ábyrgð:
-
Gróðurhús skal vera sett upp samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda og samkvæmt ráðleggingum seljanda.
-
Reglulegt viðhald er forsenda ábyrgðar (þrif, smurning, þéttingar o.s.frv.).
Ábyrgðin nær ekki til:
-
Tjóns vegna rangrar uppsetningar eða skorts á viðhaldi,
-
Glerbrota, pólýkarbónats eða fylgihluta,
-
Veðurtjóns (t.d. vindur, snjór, óveður),
-
Skemmda vegna flutnings eftir afhendingu,
-
Slitgripa (handföng, læsingar, hjól o.fl.).
Viðbótarupplýsingar:
-
Málning á álfelgum er með 2 ára ábyrgð ef flögnun stafar af framleiðslugalla.
-
Litaafbrigði í varahlutum geta komið fyrir og teljast ekki galli.
-
Gróðurhús eru ekki loftþétt; seljandi mælir með glerkítti fyrir aukna vörn.
Við mælum með að skrá gróðurhús hjá tryggingafélagi og kanna sérstaklega skilmála um veðurtjón.
Eignaréttur
Vara telst eign seljanda þar til kaupverð hefur verið greitt að fullu. Reikningsviðskipti eða önnur greiðslufyrirkomulög afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en öll greiðsla hefur borist.
Sérpantanir – vara sem er ekki á vefsíðu
Við sérpantanir greiðir kaupandi að lágmarki 50% staðfestingargjald við pöntun, nema annað komi fram í tilboði. Staðfestingargjald er ekki endurgreitt eftir að pöntun hefur verið sett í ferli.
Ef vara er ekki sótt þrátt fyrir ítrekaðar tilkynningar áskilur Listhús Arc ehf. sér rétt til að halda eftir staðfestingargjaldinu til að mæta útlagðum kostnaði. Ekki er hægt að skila sérpöntunum.
Afhending – Eimskip í Sundahöfn
Flestar vörur taka 3–4 vikur að berast til Eimskips í Sundahöfn, en afhendingartími getur einnig dregist.
Tilkynning um móttöku pöntunar berst með tölvupósti þegar varan er tilbúin til afhendingar.
Hægt er að sækja vörur til Eimskips í Sundahöfn. Við látum kaupanda vita þegar vörur hafa verið tollafgreiddar og tilbúnar til afhendingar. Hafðu samband í síma 888 0606 eða sendu tölvupóst á netfangið hello@uxhome.is til að fá nánari upplýsingar um hvenær pöntun er tilbúin.
Afgreiðslutími Eimskips í Sundahöfn er virka daga frá 08:00 til 16:00.
Ábyrgð
Öll garðhús frá Juliana og Halls eru með tólf ára ábyrgð frá framleiðanda* til einstaklinga, reiknað frá móttöku vöru.
-
Ábyrgð til fyrirtækja er eitt ár frá kaupdegi.
-
Vörureikningur eða kvittun fyrir kaupum gildir sem ábyrgðarskírteini.
-
Ábyrgðin gildir eingöngu fyrir þann aðila sem kaupir vöruna af Listhús Arc ehf. Hún flyst ekki á milli eigenda.
Listhús Arc ehf. metur hverja vöru fyrir sig og ákveður hvort ábyrgð eigi við í hverju tilfelli. Ef um galla er að ræða getur seljandi ákveðið hvort vara sé löguð eða skipt út fyrir sömu eða sambærilega vöru.
Í sumum tilvikum þarf að senda vöru til framleiðanda í Danmörku til nánari skoðunar. Þá ber kaupanda að greiða flutningskostnað til framleiðanda. Framleiðandi metur vandann og sendir til baka viðeigandi varahlut ef ábyrgð á við.
Í flestum tilvikum nægir þó að senda ljósmynd af gallaðri vöru og framleiðandi sendir viðeigandi varahlut til kaupanda á eigin kostnað.
*Skilmála um ábyrgð framleiðanda má finna á vefsíðunni www.juliana.com
Ábyrgðin nær ekki yfir:
-
Notaðar vörur sem keyptar eru á lækkuðu verði, í því ástandi sem þær eru.
-
Eðlilegt slit eða skemmdir vegna rangrar eða slæmrar meðferðar.
-
Vörur sem hafa verið ranglega settar saman.
-
Vörur sem ekki hafa verið viðhaldið samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
-
Smávægilegir hnökrar á efni eða útliti sem hafa ekki áhrif á virkni.
Það er á ábyrgð kaupanda að kynna sér og fylgja þeim leiðbeiningum sem fylgja með vörunni. Gætið þess að henda ekki leiðbeiningum með umbúðunum.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Listhús Arc ehf. getur notað þessar upplýsingar til að koma á framfæri tilkynningum, tilboðum eða upplýsingum sem varða viðskiptasambandið. Aldrei verður upplýsingum deilt með þriðja aðila, nema samkvæmt lögum eða með samþykki kaupanda.
Lög og varnarþing
Skilmála þessa skal túlka samkvæmt íslenskum lögum. Komi upp ágreiningur milli kaupanda og seljanda, skal málinu vísað til dómstóla á Íslandi.